Forseti Íslands
The President of Iceland
Íslensk þekking eftirsótt
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur á Heimsþingi um hreina orku (World Future Energy Summit) sem nú er haldið í Abu Dhabi átt viðræður við fjölmarga aðila, ráðamenn erlendra ríkja og fulltrúa stofnana og fyrirtækja sem lýst hafa miklum áhuga á samvinnu við íslenska sérfræðinga, verkfræðinga, vísindamenn og tæknifólk um nýtingu hreinnar orku.
Forseti ræddi fyrr í dag við Adnan Amin, settan forstjóra IRENA, nýrrar alþjóðlegrar stofnunar um hreina orku, og var viðfangsefni fundarins m.a. framlag íslensks jarðhitafólks til uppbyggingar stofnunarinnar en henni er ætlað að verða aðal samvinnuvettvangur ríkja heims á þessu sviði.
Þá átti forseti fund með Mohammed bin Zayed Al Nahyan, krónprins og þjóðarleiðtoga Abu Dhabi, um framhald á samvinnu við Ísland en íslenska fyrirtækið Reykjavik Geothermal annaðist á síðasta ári borun eftir jarðhita í eyðimörkinni í Abu Dhabi og skilaði það verkefni afar góðum árangri. Einnig ræddu forsetinn og krónprinsinn um hugsanlega samvinnu þeirra við að kynna á alþjóðlegum vettvangi þau tækifæri sem felast í nýtingu hreinnar orku og hvernig slík verkefni geta auðveldað baráttuna gegn loftslagsbreytingum.
Forseti ræddi einnig við fulltrúa annarra ríkja, t.d. Sviss og Marokkó, sem lýstu miklum áhuga á því að kynna sér sérstaklega tækni og nýtingu jarðhita og hyggjast leita eftir samstarfi við íslenskar stofnanir og tæknifyrirtæki.
Forseti átti einnig fund með fulltrúum ReadyMix, samstarfsaðila Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, en Ólafur Wallevik prófessor vinnur að þróun umhverfisvænnar steypu í samvinnu við þetta fyrirtæki í Abu Dhabi. Þá ræddi forseti einnig við samstarfsaðila Reykjavik Geothermal, hitti íslenska nemendur við Masdar tækniháskólann og kynnti sér framlag fjölmargra rannsóknarstofnana og tæknifyrirtækja sem taka þátt í viðamikilli sýningu sem haldin er í tengslum við Heimsþingið.
Forseti var einnig í fyrrakvöld viðstaddur hátíðlega athöfn þegar hin virtu Zayed orkuverðlaun voru afhent en þau hlaut danska vindorkufyrirtækið Vestas fyrir brautryðjendastarf sitt á heimsvísu við nýtingu vindorku. Við athöfnina var sýnd kynningarmynd þar sem m.a. voru viðtöl við forseta Íslands. Það efni hefur einnig verið sýnt í alþjóðlegum sjónvarpsstöðvum.
Letur: |
| |