Veftré Print page English

Actavis. Ný verksmiðja


Forseti er viðstaddur og flytur ávarp við opnun nýrrar verksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Með henni eykst verulega framleiðslugeta fyrirtækisins á Íslandi og um 100 nýjum störfum verður bætt við. Verksmiðjan byggir á því rannsóknar- og þróunarstarfi sem unnið er á Íslandi og er veigamikill hlekkur í alþjóðlegri starfsemi fyrirtækisins. Í ávarpi sínu fagnaði forseti þessari opnun og benti á að hún fæli í sér mikilvæg skilaboð um bjartsýni og betri tíma, og um þau tækifæri sem menntun og rannsóknir sköpuðu í atvinnulífi Íslendinga. Mynd frá opnun verksmiðjunnar.