Veftré Print page English

Sendiherra Filippseyja


Forseti á fund með sendiherra Filippseyja á Íslandi, Elizabeth P. Buensuceso, sem senn lætur af störfum. Rætt var um aukna samvinnu landanna á sviði jarðhita, þróun lýðræðis og efnahagslífs í Filippseyjum og framlag filippseyska samfélagsins á Íslandi til íslensks þjóðfélags og menningar.