Veftré Print page English

Klúbbur matreiðslumanna


Forseti sækir hátíðarkvöldverð Klúbbs matreiðslumanna sem haldinn er í Súlnasal Hótel Sögu. Þema kvöldsins var "Íslenskir réttir" og höfðu ýmsir af fremstu matreiðslumönnum landsins búið til rétti á grundvelli íslenskrar matarhefðar. Í lok hátíðarkvöldverðarins flutti forseti ávarp og þakkaði matreiðslumönnum fyrir framlag þeirra til nýrra þjóðfélagshátta, fjölþættari matarmenningar og uppbyggingar ferðaþjónustu.