Veftré Print page English

Sendiherra Pakistans


Forseti á fund með nýjum sendiherra Pakistans á Íslandi, hr. Faiz Muhammad Khoso, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um afleiðingar flóðanna í Pakistan, stöðugleika í stjórnarfari, sambúðina við nágrannaríki, bæði Indland og Afganistan, og baráttu gegn hryðjuverkaöflum.