Veftré Print page English

Verðlaunaafhending. Forvarnardagur


Í dag sunnudaginn 5. desember kl. 14:00 afhendir forseti Íslands á Bessastöðum verðlaun í ratleik Forvarnardagsins 2010. Verðlaunahafarnir koma frá Árskóla á Sauðárkróki, Flúðaskóla á Flúðum og Vallaskóla á Selfossi. Koma þeir til Bessastaða ásamt fjölskyldum sínum, kennurum, skólastjórnendum og aðstandendum Forvarnardagsins.

Ratleikurinn var á vegum Bandalags íslenskra skáta, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands en þessi heildarsamtök íþrótta- og æskulýðsmála standa að Forvarnardeginum ásamt Embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Lyfjafyrirtækið Actavis er styrktaraðili verkefnisins og framkvæmd þess annast Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík.

Í ár var Forvarnardagurinn haldinn í fimmta sinn. Fólst hann í umræðum og verkefnavinnu um fíkniefni í níunda bekk grunnskóla landsins í samvinnu við forvarnarfulltrúa, kennara og skólastjórnendur. Markmið dagsins var að efla forvarnarstarf í skólum, hvetja unglinga til að draga sem lengst að neyta áfengis og annarra fíkniefna og að minna á að samvera með fjölskyldu og þátttaka í heilbrigðu félagsstarfi vegur þungt í baráttunni gegn fíkniefnum.

Fjölmiðlum er boðið að vera viðstaddir verðlaunaafhendinguna og ræða við verðlaunahafa.