Veftré Print page English

REN Alliance


Forseti á fund með Richard Taylor, framkvæmdastjóra REN Alliance, en það er bandalag alþjóðlegra heildarsamtaka á hinum ólíku sviðum hreinnar orku. Rætt var um samstarf REN Alliance við IRENA, hina nýju alþjóðastofnun hreinnar orku, en forseti hafði fyrr á þessu ári frumkvæði að viðræðum milli REN Alliance og IRENA sem fram fóru á World Future Energy Summit í Abu Dhabi. Rætt var um samstarf þessara aðila sem og hina ýmsu alþjóðlegu fundi sem fyrirhugaðir eru á næsta ári á sviði hreinnar orku, m.a. alþjóðaþing um vatnsorku sem haldið verður í Brasilíu en síðast var það haldið á Íslandi; einnig samráðsfund um nýtingu hreinnar orku í Afríku þar sem mikill áhugi er á að nýta sér reynslu Íslendinga á sviði jarðvarma og vatnsorku.