Veftré Print page English

Rannsóknarþing norðursins


Forseti á fund með Lassi Heininen, stjórnarformanni Rannsóknarþings norðursins NRF, Stefáni B. Sigurðssyni rektor Háskólans á Akureyri, Þorsteini Gunnarssyni fyrrverandi rektor og starfsmönnum háskólans um væntanlegt Rannsóknarþing norðursins sem haldið verður í Noregi í september á næsta ári. Yfirskrift þess verður Our Ice-Dependent World og munu þar koma saman sérfræðingar, vísindamenn, stjórnmálamenn, embættismenn, fulltrúar almannasamtaka og námsmenn frá aðildarríkjum Norðurskautsráðsins sem og sérfræðingar frá löndunum sem liggja á Himalajasvæðinu. Skrifstofa Rannsóknarþings norðursins er hjá Háskólanum á Akureyri.