Veftré Print page English

Ekron


Forseti heimsækir Ekron, þar sem fram fer starfsþjálfun og endurhæfing fyrir fólk með skerta vinnufærni, einkum skjólstæðinga sem hafa neytt fíkniefna eða átt í öðrum erfiðleikum. Markmiðið er að auðvelda þeim að eiga afturkvæmt í samfélagið og útskrifast í vinnu eða skóla. Starfsemin skiptist í ýmis svið, svo sem áfengis- og vímuefnasvið, heilsusvið, atvinnusvið og skólasvið.