Veftré Print page English

Sendiherra Írans


Forseti á fund með nýjum sendiherra Írans hr. Seyed Hossein Rezvani sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastööðum. Rætt var um áhuga á samstarfi á sviði jarðhita og sjávarútvegs, aðgang ungs menntafólks að Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna sem starfræktir eru á Íslandi. Þá var einnig rætt um þróun mála í Miðausturlöndum, og samskipti Írans við nágrannalönd.