Sendiherra Ómans
Forseti á fund mem nýjum sendiherra Ómans frú Zainab Ali Said Al-Qasmiah sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um jarðhitaauðlindir í Óman og möguleika á að nýta íslenska tæknikunnáttu á því sviði sem og reynsluna af alhliða jarðhitanýtingu á Íslandi. Íslensk sérfræðifyrirtæki hafa á undanförnum misserum komið að nýtingu jarðhita í þessum heimshluta.