Veftré Print page English

Alþjóðasamstarf lækna


Forseti tekur á móti sendinefnd frá Læknaskólanum og Háskólasjúkrahúsinu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum sem heimsækir Landspítalann og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands. Átta prófessorar í læknisfræði eru í sendinefndinni en öflugt vísindasamstarf hefur verið milli Landspítalans og læknadeildar HÍ og Pennsylvaníuháskóla. Rætt hefur verið um frekari samstarfsverkefni og nýjar leiðir í klínískum rannsóknum á Íslandi.