Veftré Print page English

Forvarnardagur. Heimsóknir í Borgarnesi og á Kjalarnesi


Fréttatilkynning dagsett þriðjudaginn 2. nóvember:

Forvarnardagurinn verður haldinn á morgun miðvikudaginn 3. nóvember í grunnskólum landsins. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú munu í fyrramálið heimsækja Grunnskólann í Borgarnesi klukkan 10:15 og Klébergsskóla á Kjalarnesi klukkan 11:45.


Auk kennara og nemenda í 9. bekk í grunnskólum landsins munu fulltrúar og forystumenn íþróttafélaga, ungmennafélaga og skátahreyfingarinnar taka þátt í starfi skólanna á þessum degi. Upplýsingar um slíka þátttöku í Forvarnardeginum veitir Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, en hún er verkefnisstjóri dagsins. Einnig verður sérstakur ratleikur hluti af Forvarnardeginum og mun forseti Íslands síðar afhenda verðlaunin á Bessastöðum.


Forvarnardagurinn var í fyrsta sinn haldinn árið 2006 undir kjörorðinu „Taktu þátt! Hvert ár skiptir máli.“ Hann er haldinn að frumkvæði forseta Íslands en aðrir aðstandendur eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og lyfjafyrirtækið Actavis sem er aðalstuðningsaðili verkefnisins.


Á Forvarnardaginn er lögð megináhersla á að koma því til skila sem áratugalangar rannsóknir íslenskra fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík hafa sýnt að skili mestum árangri í forvörnum gegn fíkniefnum:


1. Að foreldrar og ungmenni verji sem mestum tíma saman.

2. Að börn og unglingar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.

3. Að ungmenni fresti því sem lengst að hefja neyslu áfengis.


Niðurstöður úr hópastarfi ungmennanna á Forvarnardaginn, tillögur þeirra og hugmyndir verða teknar saman og gefnar út í sérstakri skýrslu sem kynnt verður á vettvangi sveitarfélaga og íþrótta- og æskulýðssamtaka. Skýrsla með niðurstöðum umræðna á Forvarnardaginn í fyrra er aðgengileg á heimasíðunni forvarnardagur.is


Myndband sem sérstaklega er gert í tilefni af Forvarnardeginum verður sýnt í öllum grunnskólum. Þar flytur forseti Íslands ávarp auk þess sem upplýsingar eru veittar um heilræðin þrjú, rætt er við ungmenni og þjóðþekkt afreksfólk úr heimi íþrótta, fjölmiðla og lista flytur boðskap Forvarnardagsins.


Á vefsíðunni forvarnardagur.is er öllu efni sem tengist deginum haldið til haga en þar er einnig að finna nýjan ratleik á netinu sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta hafa sett saman og ungmenni í 9. bekk eru hvött til að taka þátt í. Dregið verður úr hópi þeirra sem senda inn réttar lausnir í ratleiknum og eru vegleg verðlaun í boði.


Allmörg ungmenni hafa verið valin til að vera sérstakir málsvarar Forvarnardagsins, m.a. við fjölmiðla, enda er einn megintilgangur með Forvarnardeginum að hlýða á skilaboð ungmennanna sjálfra og ráð þeirra um hvernig best sé að fjölga samverustundum fjölskyldunnar, auka framboð á íþrótta- og æskulýðsstarfi við hæfi og hvernig hægt sé að vinna saman að því að fresta áfengisneyslu ungmenna.