Veftré Print page English

Jarðhitasamstarf


Forseti á fund með prófessor Michael Porter frá Harvardháskóla sem í gær flutti aðalerindið á ráðstefnunni Iceland Geothermal 2010. Rætt var um hvernig efla mætti samstarf hinna fjölmörgu íslensku fyrirtækja, stofnana, skóla og samtaka sem starfa á þessu sviði, svo að nýta megi hin fjölmörgu tækifæri sem blasa við á komandi árum. Ísland, sem nýtur þess orðspors að vera forystuland á þessu sviði, verður í sívaxandi mæli eftirsóttur samstarfsaðili fjölmargra ríkja í ólíkum álfum heims.