Veftré Print page English

Forvarnardagur. Kynning


Forseti er viðstaddur kynningu á Forvarnardeginum í Foldaskóla og flutti þar ávarp. Á kynningunni fluttu einnig stutt ávörp Jón Gnarr borgarstjóri, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri Actavis á Íslandi, Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ og Bragi Björnsson skátahöfðingi. Forvarnardagurinn verður haldinn í grunnskólum landsins á morgun. Sýnt verður myndband í hverjum skóla og nemendur ræða áherslur í forvarnarstarfi. Sjá vefsíðu dagsins: forvarnardagur.is.