Veftré Print page English

Fátækt á Íslandi


Forseti sækir borgarafund um fátækt á Íslandi sem haldinn er á vegum Bótar, aðgerðarhóps um bætt samfélag. Á  fundinum fjölluðu talsmenn öryrkja, aldraðra, atvinnuleitenda og félagsbótaþega um erfiðleikana sem fólk glímir við í íslensku samfélagi, skort á matvælum og óvissu í húsnæðismálum. Á fundinum voru einnig fulltrúar ríkis og sveitarfélaga sem og ýmissa samtaka og stofnana.