Veftré Print page English

Fyrrv. Evrópuþingmenn


Forseti ræðir við hóp fyrrverandi þingmanna á Evrópuþinginu sem heimsækja Ísland til að kynna sér þjóðlíf og atvinnuhætti, viðhorf Íslendinga til Evrópusamstarfsins, afleiðingar bankahrunsins og þróun efnahagslífsins. Forseti ræddi þessa þætti á fundinum sem og fiskveiðistefnu Íslendinga, þróun hennar, mikilvægi sjávarauðlinda sem og stöðu forsetans í íslenskri stjórnskipun.