Veftré Print page English

Málþing um jarðhita


Forseti á fund með forvígismönnum málþings um jarðhita, Iceland Geothermal 2010, sem haldið verður í byrjun nóvember. Meðal ræðumanna verður bandaríski prófessorinn Michael Porter frá Harvard háskóla en hann er meðal helstu sérfræðinga heims á sviði samkeppnishæfni. Rætt var um dagskrá málþingsins og efnisþætti en forseti mun í lok þess fjalla um niðurstöður.