Veftré Print page English

Kyodo News


Forseti ræðir við tvo blaðamenn frá Kyodo í Japan um reynslu Íslendinga í kjölfar bankahrunsins, þróun efnahagslífs og atvinnuvega, og mikilvægi auðlinda eins og hreinnar orku, sjávarafurða og vatns fyrir styrkleika íslensks hagkerfis á komandi áratugum. Einnig var rætt um áhuga Japana á að skoða ástæður langlífis Íslendinga og var í því sambandi rætt um uppbyggingu heilbrigðiskerfis og forvarnir sem felast í hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og banni við reykingum.