Veftré Print page English

Íslandsstofa


Forseti á fund með Jóni Ásbergssyni framkvæmdastjóra Íslandsstofu og Þorleifi Þór Jónssyni forstöðumanni um verkefni á sviði hreinnar orku, ferðaþjónustu og samstarfs við mennta- og fræðslustofnanir í öðrum löndum. Einnig var rætt um sýningu sem halda á í Beijing í nóvember næstkomandi og helguð verður grænni tækni en forystumenn Kína buðu Íslendingum til þátttöku í henni í nýlegri heimsókn forseta til Kína.