Íþróttamiðstöðin á Dalvík
Forseti er viðstaddur vígslu nýrrar og glæsilegrar íþróttamiðstöðvar á Dalvík og flytur ávarp við það tækifæri. Íþróttamiðstöðin er tengd sundlaug bæjarins og gerbreytir allri aðstöðu til íþróttaiðkana og heilsubótar, bæði fyrir íþróttafélögin og bæjarbúa. Fjölþætt dagskrá var á opnunarhátíðinni og að henni lokinni hófst innanhússmót í frjálsum íþróttum.
Ávarp forseta. Myndir.