Veftré Print page English

Heimskauta- og hafrannsóknir


Forseti á fund með Chen Lianzeng, stjórnanda Heimskautastofnunarinnar í Shanghai, sem jafnframt er ábyrgur fyrir hafrannsóknum, um rannsóknasamstarf á norðurslóðum. Kínverjar hafa á undanförnum árum sent leiðangra bæði til Suðurskautsins og Norðurskautsins og hafa mikinn áhuga á að efla margvíslega rannsóknasamvinnu á því sviði. Chen Lianzeng og sendinefnd hans hafa átt fundi með embættismönnum og sérfræðingum í utanríkisráðuneytinu og umhverfisráðuneytinu og á Hafrannsóknastofnun; sendinefndin heimsækir á morgun Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Háskólann á Akureyri.