Veftré Print page English

Loftleiðir


Forseti á fund með forsvarsmönnum Loftleiða, dótturfélags Icelandair, sem annast flugrekstur í Jakútíu í Rússlandi, í Papúu Nýju-Gíneu og fleiri löndum. Rætt var um árangur af fundi forseta með forseta Rússlands Dmitry Medvedev og forsætisráðherranum Valdimir Putin sem báðir studdu eindregið að samvinna við Ísland á þessu sviði yrði efld, einkum vegna reynslu Íslendinga af flugrekstri á norðurslóðum og við erfið veðurskilyrði.