Veftré Print page English

Indland. Orkumál


Forseti á fund með sendiherra Indlands á Íslandi varðandi heimsókn dr. Farooq Abdullah ráðherra endurnýjanlegrar orku í indversku ríkisstjórninni, sem kemur til Íslands um helgina til þess að kynna sér margvíslega nýtingu jarðhita. Ráðherrann verður í boði iðnaðarráðuneytisins en heimsóknin er í framhaldi af opinberri heimsókn forseta til Indlands í byrjun ársins og ráðstefnu um samvinnu í orkumálum sem þá var haldin í Delhi.