Forseti Íslands
The President of Iceland
Fundur með forseta Slóvakíu
Forseti á fund með forseta Slóvakíu Ivan Gašparovič skömmu eftir að forsetinn kom til landsins. Með honum í för er utanríkisráðherra Slóvakíu Mikuláš Dzurinda og embættismenn sem einnig sátu fundinn. Rætt var um stöðu smærri þjóða í Evrópu, reynslu Slóvakíu af aðildinni að Evrópusambandinu, möguleika landsins til að nýta jarðhita í samvinnu við íslensk verkfræðifyrirtæki, aukin samskipti á sviði menningar og vísinda sem og um stöðu mannréttinda, einkum réttindi Roma-barna í skólakerfi Slóvakíu.
Letur: |
| |