Veftré Print page English

Blaðamannafundur og málþing á Sumar Davos


Forseti svarar spurningum á blaðamannafundi og tekur þátt í nokkrum málþingum á alþjóðaþingi World Economic Forum sem haldið er í Tianjin en það gengur undir heitinu Sumar Davos með tilvísun til þingsins í janúar í Davos Sviss. Á málþingunum sem forseti tók þátt í var m.a. fjallað um sjálfbæra þróun, varðveislu viskerfis jarðar, vatnsbúskap og landnýtingu, fiskveiðar og nýtingu auðlinda hafsins, stöðu smárra ríkja og þróun þeirra í veröld sem býr við vaxandi samkeppni og alþjóðavæðingu.