Veftré Print page English

Blaðamannafundur á Heimssýningunni


Forseti hélt blaðamannafund í íslenska sýningarskálanum á Heimssýningunni á þjóðardegi Íslands og svaraði spurningum margra kínverskra fjölmiðla. Auk þess ræddi forseti við kínverska ríkissjónvarpið og eitt helsta viðskiptablað í Kína. Umræðuefnin voru m.a. framlag Íslands á Heimssýningunni, nýting hreinnar orku, opnun siglingaleiðar um norðurhöf og  aukinn straumur ferðamanna frá Kína til Íslands.