Veftré Print page English

Nýjar höfuðstöðvar


Forseti er viðstaddur opnun nýrra höfuðstöðva hugbúnaðar-
fyrirtækisins LS Retail. Það hefur náð miklum árangri á undanförnum árum og er nú hugbúnaður þess notaður í yfir sextíu löndum í 27.000 verslunum. Meðal notenda hugbúnaðarins eru þekktustu fyrirtæki heims. Fulltrúar LS Retali tóku þátt í opinberri heimsókn forseta til Indlands í upphafi þessa árs en fyrirtækið hefur náð miklum árangri á Indlandi. Viðstaddir opnunina voru fulltrúar samstarfsaðila frá mörgum löndum. Í ávarpi fagnaði forseti árangri fyrirtækisins sem bæri vitni um þann kraft og sköpunargetu sem væri í íslenskum hugbúnaðarfyrirtækjum. Árangurinn væri mikilvæg skilaboð fyrir ungt fólk á Íslandi. Hægt væri að afla sér menntunar með það að markmiði að hafa rætur á Íslandi en tengjast athöfnum á heimsvísu.