Víkingasýningar. Rannsóknir
Forseti á fund með William Fitzhugh safnstjóra Smithsonian stofnunarinnar í Washington og Elizabeth Ward safnstjóra Víkingaheima í Reykjanesbæ. Rætt var um árangur af víkingasýningunni sem efnt var til árið 2000 í Bandaríkjunum en sú sýning fór til margra borga þar í landi og einnig til Kanada. Þá var fjallað um tækifæri sem hinir nýju Víkingaheimar í Reykjanesbæ fela í sér, bæði hvað varðar ferðaþjónustu, alþjóðlegar ráðstefnur og fræðslu fyrir nemendur og skólafólk á Íslandi.
Mynd