Veftré Print page English

Vígsluhátíð menningarhússins Hofs


Forseti er viðstaddur vígslu menningarhússins Hofs á Akureyri. Í því eru tveir salir ásamt margvíslegri annarri aðstöðu og verður húsið ný heimkynni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og annarra þátta í tónlistarlífi Akureyrar sem og nýr vettvangur fyrir Leikfélag Akureyrar og aðra menningarstarfsemi á Norðurlandi. Þá situr forseti kvöldverð í boði bæjarstjórnar Akureyrar sem haldinn er í Hofi.