Vígsla háskólabyggingar á Akureyri
Forseti flytur ræðu við vígslu nýbyggingar
Háskólans á Akureyri. Byggingin gerbreytir aðstöðu háskólans, bætir við nýjum fyrirlestrasölum og margvíslegum möguleikum fyrir nemendur og starfsfólk, sem og alþjóðlega starfsemi háskólans. Auk forseta flytja ávörp menntamálaráðherra og rektor og fulltrúar góðvina háskólans, nemenda og byggingaraðila. Að lokinni vígslunni er opið hús háskólans á Akureyri þar sem fram fer kynning á starfsemi sviða og rannsóknarstofnana háskólans sem og á starfsemi nemendafélagsins og á símenntun og alþjóðastarfi.
Ávarp forseta.