Veftré Print page English

Forvarnir. Actavis


Forseti á fund með nýjum forstjóra Actavis Claudio Albrecht og Hjördísi Árnadóttur fjölmiðlafulltrúa um vaxandi starfsemi fyrirtækisins, vöxt umsvifa þess á Íslandi og stuðning við verkefni í forvörnum sem miða að því að forða ungu fólki frá því að verða fíkniefnum að bráð. Þar ber hæst verkefnið Youth in Europe sem fjöldi evrópskra borga tekur þátt í og Forvarnardaginn á Íslandi. Forseti er verndari beggja verkefnanna og eru þau byggð á rannsóknum íslenskra félagsvísindamanna.