Veftré Print page English

Carnegie Council


Forseti á fund með David Speedie, fulltrúa Carnegie Council í New York, um rannsóknir á þátt siðfræði og öryggismála í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, áhrif náttúruhamfara á líf almennra borgara og hvernig hægt sé að skapa árangursríka alþjóðlega umræðu um þessi efni. Carnegie Council stefnir að því að koma á fót umræðuþingum með þátttöku fulltrúa og sérfræðinga frá Bandaríkjunum og ýmsum öðrum ríkjum, svo sem Indlandi, Kína, Rússlandi, Indónesíu og fleirum.