Veftré Print page English

Fjölskyldur frá Ísrael


Forseti ræðir við fjölskyldur frá Ísrael, foreldra, börn og unglinga sem á undanförnum vikum hafa ferðast hringinn í kringum landið. Rætt var um reynslu af slíkum fjölskylduheimsóknum til Íslands, aðbúnað og fyrirgreiðslu heimamanna sem og fegurð íslenskrar náttúru og fjölþætt tækifæri allra aldursflokka til að njóta Íslands.