Veftré Print page English

Jarðvegsrannsóknir. Vísindasamvinna


Forseti á fund með William Ravlin prófessor við Ohio State Háskólann í Bandaríkjunum og Guðrúnu Gísladóttur prófessor við Háskóla Íslands um samvinnu bandarískra og íslenskra vísindamanna á sviði jarðvegsrannsókna, gróðurfars og loftslagsbreytinga. Einnig var rætt um möguleika á víðtækari samvinnu svo sem rannsóknum á viðbrögðum við náttúruhamförum, t.d. eldgosum, flóðum, hvirfilvindum og jarðskjálftum.