Veftré Print page English

Franskir þingmenn


Forseti á fund með sendinefnd frá franska þjóðþinginu sem heimsækir Ísland í boði Alþingis. Rætt var um samstarf landanna, lærdómana sem draga má af alþjóðlegri fjármálakreppu og hruni bankanna á Íslandi. Þá var fjallað um endurreisn íslensks efnahagslífs, Icesave deiluna, viðbrögð við loftslagsbreytingum, málefni norðurslóða og árangur Íslendinga við nýtingu hreinnar orku.