Veftré Print page English

Sendiherra Kína


Forseti á fund með sendiherra Kína, Su Ge, þar sem rætt var um árangur af nýlegri heimsókn kínverskrar sendinefndar til Íslands, samvinnu landanna við nýtingu hreinnar orku, og heimsókn forseta á Heimssýninguna í Shanghæ en hún er áformuð í september. Þá verður einnig haldið málþing um reynslu Íslendinga í orkumálum og forseti tekur þátt í sérstökum Íslandsdegi á Heimssýningunni.