Veftré Print page English

Konunglegt brúðkaup í Svíþjóð


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú héldu í morgun, föstudaginn 18. júní, til Stokkhólms þar sem þau munu taka þátt í hátíðarhöldum vegna brúðkaups Viktoríu krónprinsessu og Daniels Westling. Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning buðu forsetahjónunum að sækja brúðkaupið.

Í kvöld sitja forsetahjón og aðrir gestir kvöldverð sænsku ríkisstjórnarinnar en í kjölfar hans er boðið til hátíðartónleika í Tónlistarhúsi Stokkhólmsborgar.

Vígsluathöfnin verður á morgun laugardaginn 19. júní og eftir hana er boðið til hátíðarkvöldverður í sænsku konungshöllinni.