Veftré Print page English

Sendiherra Ítalíu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Ítalíu Antonio Bandini sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um trausta samvinnu landanna, öflugan útflutning á íslenskum sjávarafurðum til Ítaliu í röska öld, fjölþætt samskipti á sviði menningar og lista, þróun Evrópusambandsins og lærdóma sem draga má af bankakreppu víða í álfunni.