Veftré Print page English

Sendiherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna


Forseti á fund með sendiherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna hr. Abdulrahman Ghanem A. Almutaiwee sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum en hann er fyrsti sendiherra landsins á Íslandi. Rætt var um samstarf ríkjanna á sviði hreinnar orku, þátttöku forseta í heimsþingi í Abu Dhabi um framtíð orkumála, borun Reykjavík Geothermal eftir jarðhita í Abu Dhabi og tækifæri til samstarfs á öðrum sviðum, svo sem ýmiss konar tækni og í útflutningi á drykkjarvatni frá Íslandi til Sameinuðu arabísku furstadæmanna.