Veftré Print page English

Kínversk sendinefnd


Forseti á fund með kínverskri sendinefnd sem heimsækir Ísland. Sendinefndin er undir forystu He Guoqiang og í henni eru fulltrúar frá Seðlabanka Kína, Útflutnings-innflutningsbanka Kína og kínverskum orkufyrirtækjum. Áður hefur kínverska sendinefndin átt fundi með forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur og utanríkisráðherra Össuri Skarphéðinssyni og undirritaðir hafa verið samningar. Að loknum fundinum býður forseti fulltrúum kínversku sendinefndarinnar til hádegisverðar á Bessastöðum.