Veftré Print page English

Fjölskyldudagur UMFÍ


Forseti flytur ávarp á fjölskyldudegi UMFÍ.  Dagskráin var á Miðfelli í Hrunamannahreppi og þar var ýtt úr vör sérstöku átaki UMFÍ sem ber heitið "Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga!" Markmið þess er að fá fjölskyldur til að njóta íslenskrar náttúru og hollrar hreyfingar. Í ávarpi sínu þakkaði forseti UMFÍ fyrir forystu þess á undanförnum árum í að efla samvistir fjölskyldna, bæði með þessari herferð sem nú væri ýtt úr vör og unglingalandsmótunum sem haldin eru um verslunarmannahelgina.