Veftré Print page English

Íþróttahreyfingin. Kjöri fagnað


Forseti tekur þátt í fagnaðarhátíð forystusveitar íþróttahreyfingarinnar vegna kjörs Ólafs Rafnssonar, forseta ÍSÍ sem forseta körfuknattleikssambands Evrópu, FIBA. Forseti flutti ávarp þar sem hann óskaði Ólafi og íþróttahreyfingunni til hamingju með kjörið en það væri líka mikilvægt fyrir íslenska þjóð. Í því fælist viðurkenning á starfi íþróttahreyfingarinnar og hæfileikum Ólafs Rafnssonar en það væri jafnframt vitnisburður um hvernig grasrótarstarf þessarar fjöldahreyfingar gæti eflt forystumenn til trúnaðar á evrópskum vettvangi. Ólafur Rafnsson mun sem forseti FIBA jafnramt eiga sæti í stjórn heimssamtaka körfuknattleiksfélaga.