Forseti Íslands
The President of Iceland
Vík í Mýrdal. Öskufallssvæði
Forseti heimsækir Vík í Mýrdal og bændur á þeim svæðum þar sem aska hefur fallið síðustu daga, kynnir sér hreinsunarstarf, ræðir við forsvarsmenn sveitarfélagsins og Almannavarna, slökkviliðsmenn frá ýmsum sveitarfélögum og aðra þátttakendur í hreinsunarstarfi. Einnig heimsækir forseti ýmsa sveitabæi í héraðinu þar sem mikið öskufall hefur orðið síðustu sólarhringana og ræðir við bændur um erfiðleika þeirra og viðbrögð við þessum hamförum.
Letur: |
| |