Forseti Íslands
The President of Iceland
Orkuklasar
Forseti á fund með dr. Christian Ketels hagfræðingi við Harvard Business School, Hákoni Gunnarssyni og Þóru Margréti Þorgeirsdóttur um rannsóknarverkefni sem felur í sér kortlagningu allra þeirra sem koma að nýtingu jarðhita, tækniþróun og virkjunum á Íslandi og hvernig slík kortlagning getur nýst við þróun jarðhitanýtingar víða um heim. Ætlunin er að efna til alþjóðlegrar ráðstefnu um slíka orkuklasa á næsta ári.
Letur: |
| |