Veftré Print page English

Sjávarútvegssýningin. Orkukynning


Forseti á fund með forráðamönnum Íslensku sjávarútvegssýningarinnar sem haldin verður á næsta ári en hún hefur um langt árabil verið vettvangur til kynningar á tækni og skipulagi í sjávarútvegi. Sýningin hefur öðlast sess meðal virtustu alþjóðasýninga af þessu tagi. Skipuleggjendur hafa einnig áhuga á að efna til sýninga eða alþjóðlegs ráðstefnuhalds þar sem fjallað verður um árangur Íslendinga við nýtingu hreinnar orku og hvernig hann getur gagnast öðrum þjóðum.