Veftré Print page English

Framlag Íslands


Forseti sækir ýmsar málstofur á heimsþingi um jarðhita sem haldið er á Bali á Indónesíu. Þá sótti forseti móttöku sem Útflutningsráð Íslands bauð til í samvinnu við íslensk verkfræði- og jarðhitafyrirtæki. Móttakan var haldin í sýningaraðstöðu þessara íslensku aðila á þinginu. Þá flutti forseti ávarp á samkomu sem Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna efndi til og sótt var af um 100 sérfræðingum og vísindamönnum sem stundað hafa nám við skólann á Íslandi. Þá ræddi forseti við alþjóðlegu sjónvarpsstöðina BBC World News um árangur Íslendinga á sviði jarðhita.