Veftré Print page English

Sendiherra Pakistans


Forseti á fund með sendiherra Pakistans á Íslandi, hr. Rab Nawaz Khan, sem senn lætur af störfum. Rætt var um þróun mála í Pakistan og sambúðina við nágrannaríkin Afganistan og Indland, baráttuna gegn hryðjuverkaöflum og breytingar á stjórnkerfi landsins.