Sendiherra Indónesíu
Forseti á fund með nýjum sendiherra Indónesíu Esti Andayani sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um væntanlegt heimsþing
jarðhitasérfræðinga sem haldið verður í Indónesíu síðar í þessum mánuði,
samvinnu landanna á sviði hreinnar orku og sjávarútvegs, sem og kynni
forseta af Indónesíu á árum áður.