Veftré Print page English

Afmæli Margrétar Danadrottningar


Forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafa þegið boð Margrétar Danadrottningar um að taka á morgun, fimmtudaginn 15. apríl og föstudaginn 16. apríl, þátt í hátíðarhöldum í Kaupmannahöfn í tilefni af 70 ára afmæli drottningar. Hátíðarhöldin hefjast annað kvöld með viðhafnarsýningu í Konunglega leikhúsinu. Næsta dag verður móttaka í Ráðhúsi Kaupmannahafnar og hátíðarkvöldverður í Konungshöllinni. Þjóðhöfðingjum Norðurlanda er sérstaklega boðið til hátíðarhaldanna.(Athugasemd: Forsetafrú sótti þennan atburð en þar sem flug féll niður vegna eldgoss í Eyjafjallajökli gat forseti ekki verið þar líka).